December 11, 2011

Jólaævintýri

Pistill eftir sem birtist í Sunnudagsmogganum 10. des


Jólin eru tilfinningalega flókin tími. Miklar væntingar eru gerðar til hátíðar ljóss og friðar og við gerum miklar kröfur til sjálfra okkar. Það er kúnst að njóta þess smáa í öllu jólastressinu. Ég er jólabarn, fædd viku fyrir jól og því er desember minn mánuður. Reyndar er ég svo mikið jólabarn að það er orðið að hefð á mínu heimili að húsmóðirin fái vægt aðventu-taugaáfall. Árlega lofa ég sjálfri mér að vera skynsöm og kúl á því en hingað til hefur það aldrei tekist.



 http://wallpaperschristmas.blogspot.com

Stóri strákurinn minn, níu ára, sagði nýlega að desember væri friðsælasti mánuðurinn. Jólafasistinn, mamma hans, brosti útí annað yfir barnslegri einfeldni drengsins. Enda veit hún að jólin eru hörkupuð því þau verða að vera fullkomin, eins og í amerískri bíómynd.  Slétt og feld, hrein og umfram allt falleg enda eru jólin heilög. Gólfin hrein, allt á sínum stað, börnin prúð og fín í nýjum jólafötum, foreldrarnir brosandi og blíð... semsagt FULLKOMIN. Þetta eru minningarnar sem lifa lengst í hugum fólks, svo það er eins gott að standa sig! 

Auðvitað er þetta heimatilbúin vandi minn. Fyrir strákunum mínum snýst aðventan um jólasveinana, kakóbolla og kósýheit. Sá elsti segist enn vera staðfastur í trúnni á jólasveinana. Þeir eru raunverulegir og eru 13 talsins og hananú! Stígvélum er stillt útí glugga og glugginn opnaður uppá gátt. Miðdrengnum finnst frekar óhugnanleg tilhugsun að það komi skítugir karlar að húsinu okkar á nóttunni til að setja gotterí í stígvél. Honum líst mjög illa á að kíkja útí glugga til að sjá hvort eitthvað bíði hans þar. Enda skynsamur drengur. Sá minnsti, þriggja ára stúfur, er að komast á þann aldur að skynja spennuna í kringum ólátabelgina hennar Grýlu og setur stígvélið sitt út í glugga jafnvel þó sveinarnir séu enn ekki komnir til byggða. 

Hver veit nema ég sigli í gegnum desembermánuð í góðu (já eða bara sæmilega) andlegu jafnvægi þetta árið. Laus undan áhrifum bíómynda og markaðsherferða sem birta glansmyndir af fullkomnum jólum. Vonandi tekst það í þetta skiptið að upplifa hreinu og fölskvalausu gleðina sem töfrar jólanna sannarlega birtast í augum barna minna. Vonandi...